
Einar Falur Ingólfsson, var með fyrirlestur um sinn feril sem ljósmyndari á fræðslufundi Fókus 22. september síðastliðinn.
Lesa áfram „Einar Falur á fræðslufundi Fókus“
Einar Falur Ingólfsson, var með fyrirlestur um sinn feril sem ljósmyndari á fræðslufundi Fókus 22. september síðastliðinn.
Lesa áfram „Einar Falur á fræðslufundi Fókus“Þegar Ljósmyndasafn Reykjavíkur opnaði í morgun var röskur hópur sýnenda og sýningarnefndar mættur til að setja upp næstu sýningu Fókus þetta árið, þemað „Götumyndir“ sem er sú fimmta af sjö í sýningarröðinn „SKOTIÐ í Fókus 2026“
Einbeitingin skein af hverju andliti því allt þarf að vera sett upp samkvæmt kúnstarinnar reglum. Og hallamálið var mundað í gríð og erg.
Lesa áfram „Sýningaropnun „Götumynda“ föstudaginn 24. 7. 2026“Nýlega tók ég þá ákvörðun að skella mér af krafti í myndatöku með löngum opnunartíma. Sumir myndu kannski kalla þetta dellu, að leggjast af fullum þunga í áhugamálin hverju sinni. Fyrir um 20 árum tók ég kryddjurtaræktun sömu tökum. Námskeið sótt, bækur keyptar, efni lesið á netinu og endalaust prófað, þar til íbúðin fylltist af basil og um 90 kryddplöntur stóðu í gluggunum þegar mest var.
Auk þess las ég mig til og prófaði mig áfram, það kemur auk þess ótrúlega mikill lærdómur út úr því að skrifa um efnið. Þessi grein um ljósmyndun með löngum lokunartíma er einmitt dæmi um það. Greinin verður til sem hluti af vegferð minni að læra aðferðina. Pistillinn er ekki saminn út frá hæfni, heldur út frá þörf til að læra og skilja og verður til með því að tengja stutta reynslu við efni af vefnum og setja fram á aðgengilegan hátt. Pistillinn gagnast vonandi sumum, og öðrum eflaust alls ekki.
Pistillinn er langur og fjallar m.a. nokkra þætti sem skipta máli fyrir langan lokunartíma, svo sem ljósþríhyrninginn, stop, búnaður, mismunandi kerfi og mismunandi mælingar á styrk filtera.
Lesa áfram „Langur lokunartími, hugrenningar byrjanda“Þrjátíu og þrír Fókusfélagar ferðuðust um Strandir í vorferð félagsins 2026. Hér má lesa ferðasögu og sjá myndir úr einstaklega vel heppnaðri ferð norður í Djúpavík, Gjögur og víðar.
Fyrir hönd Fókusfélaga þakkar stjórn og ferðanefnd öllum þeim sem komu að skipulagi og mótttöku Fókusfélaga í vorðferðinni norður á Strandir. Ferðafélagar voru allir afar ánægðir með ferðina.
Pistill Önnu Soffíu Óskarsdóttur fylgir, skreyttur myndum ýmissa ferðafélaga.
Vorferð Fókus var farin dagana 1.-3. maí 2026, norður á Strandir. Nokkrir félagar fóru norður á fimmtudegi og höfðu auka myndatökudag á ströndum. Þrjátíu og þrír félagar tóku þátt í ferðinni og hefur aldrei verið farin stærri ferð á vegum félagsins. Nokkrir félagar tóku þátt í sinni fyrstu Fókusferð, á meðan aðrir hafa verið með um lengri eða skemmri tíma. Fókusfélagar komu ekki bara frá Reykjavíkursvæðinu heldur einnig Skagafirði og Akranesi að þessu sinni.
Lesa áfram „Vorferð Fókus norður á Strandir“Um 46 félagar mættu á aðalfund Fókus sem haldinn var í Hraunbæ 123 þann 21.4.2026 og var stemningin í senn hlý og kraftmikil. Slík mæting á aðalfund er ekki sjálfgefin í félagasamtökum og endurspeglar hún sterka samkennd og vaxandi áhuga á öflugu starfi félagsins. Mæting upp á 25% á aðalfund þekkist vart í íslenskum félagasamtökum.
Ellert B. Guðjósson var valinn fundarstjóri og Brynja Jóhannsdóttir ritaði fundargerð. Bæði sinntu þau hlutverkum sínum af miklum sóma.
Fundurinn fór fram samkvæmt boðaðri dagskrá þar sem hefðbundin aðalfundarstörf voru tekin fyrir. Umræður voru jafnframt góðar og komu fram ýmsar hugmyndir um starfið á komandi ári.

Eitt af því sem við gerum í Fókus er að fara í áhugaverðar heimsóknir. Við þökkum Kvikmyndasafni Íslands kærlega fyrir frábærar mótttökur þann 5. mars 2026. Gildi þess að eiga svona öflugt kvikmyndasafn er ómetanlegt. Starfsfólk safnins hefur undanfarið staðið sig með prýði við að auka aðgengi almennings að þeim verðmætum sem þar er að finna. Það er m.a. gert með því að afrita efni á stafrænt form og setja það fram á aðgengilegan hátt til dæmis á https://www.islandpaafilm.dk/. Þau Ester Bíbí Ásgeirsdóttir og Gunnar Kristófersson tóku á móti okkur með miklum myndarbrag. Fókus þakkar þeim, Þóru Sigríði Ingólfsdóttur forstöðumanni safnsins og öðru starfsfólki fyrir yndislega kvöldstund. Úrvals góðar myndir Kristjáns frá heimsókninni fylgja. Myndirnar hans hjálpa okkur að muna áfram eftir þessar góðu samverustund.

Stór hluti af gildi þess að vera í Fókus er að fara saman í styttri og lengri ferðir og njóta þess að taka myndir. Fólk mætir alltaf í góðu skapi, er alltaf tilbúið að aðstoða hvert annað. Eftir ferðirnar er svo gaman að sjá hvernig myndir hinir tóku og hugsa með sér „sniðugt sjónarhorn, sniðug aðferð, falleg mynd, frábær félagsskapur.“
Pistill Önnu Soffíu sem tekur þátt í kröftugu skipulagi ferðanefndar fylgir:
Fyrsta dagsferð Fókus á nýju ári var farin laugardaginn, 21. febrúar. Alls lögðu 12 félagar í leiðangur ásamt hundinum Lóu. Tíu félagar lögðu bílum við Grænavatn og gengu flestir að Austurengjahver, einn heillaðist af Grænavatni, en tveir félagar til viðbótar byrjuðu myndatöku við Kleifarvatn og fóru nokkuð aðrar leiðir, sem tillögur ferðanefndar höfðu bent á sem valkosti.
Lesa áfram „Fókus í Krísuvík“Bára Kristinsdóttir heimsótti Fókus þann 17. febrúar og gaf okkur innsýn í feril sinn og verk. Hún fór yfir nokkur verkefni sín, notkun mismundandi myndavéla, filmu, poilaroid og digital. Bára fjallaði um eldri verkefni og þau nýrri. Í kynningu Báru mátti sjá hvernig persónuleg nálgun, hlýja, hugmyndir, efni og aðferðir fléttast saman í heildstæða frásögn.

Það var nánast fullt á félagsfundi þriðjudagskvöldið 27. janúar þegar 58 Fókusfélagar mættu og hlýddu á mjög fróðlegt erindi Sævars Helga Bragasonar um komandi almyrkva á sólu.
Lesa áfram „„Við almyrkva breytist allt“ – Sævar Helgi og himingeimurinn“Það var eitthvað sérstaklega hátíðlegt við það að þrettán félagar í Fókus hófu árlegt jólarölt á Norðlingaholti: þrettán ljósmyndararnir, hver með sitt skap, sína linsu og sína skoðun á því hvort betra væri að klæða sig eins og í fjallgöngu eða til göngu á rauða dreglinum í Cannes. Hópnum var skipt í bíla og svo ekið af stað stundvíslega kl. 12:10 yfir heiðina. Á leiðinni skiptist fólk á sögum og vangaveltum um stillingar á myndavélum í skammdeginu. Ekki var annað að sjá en að allir væru í góðu skapi — og að Gunna væri á nýju skónum. Enginn vissi hvernig dagurinn færi en eitt var víst að alltaf verður ákaflega gaman þá er fókusfélagar hittast.
Lesa áfram „Jólarölt Fókus – Selfoss“