Vorferð Fókus norður á Strandir

Þrjátíu og þrír Fókusfélagar ferðuðust um Strandir í vorferð félagsins 2026. Hér má lesa ferðasögu og sjá myndir úr einstaklega vel heppnaðri ferð norður í Djúpavík, Gjögur og víðar.

Fyrir hönd Fókusfélaga þakkar stjórn og ferðanefnd öllum þeim sem komu að skipulagi og mótttöku Fókusfélaga í vorðferðinni norður á Strandir. Ferðafélagar voru allir afar ánægðir með ferðina.

Pistill Önnu Soffíu Óskarsdóttur fylgir, skreyttur myndum ýmissa ferðafélaga. 

Vorferð Fókus var farin dagana 1.-3. maí 2026, norður á Strandir. Nokkrir félagar fóru norður á fimmtudegi og höfðu auka myndatökudag á ströndum. Þrjátíu og þrír félagar tóku þátt í ferðinni og hefur aldrei verið farin stærri ferð á vegum félagsins. Nokkrir félagar tóku þátt í sinni fyrstu Fókusferð, á meðan aðrir hafa verið með um lengri eða skemmri tíma. Fókusfélagar komu ekki bara frá Reykjavíkursvæðinu heldur einnig Skagafirði og Akranesi að þessu sinni.

Lesa áfram „Vorferð Fókus norður á Strandir“

Vorferð í Skaftafellssýslur

Anna Soffía í ferðanefndinni sendi okkur eftirfarandi pistil um vorferð Fókus 2025:

Vorferð Fókus var að þessu sinni 4 daga ferð í Skaftafellssýslur. Áhugi á ferðinni reyndist mikið meiri en ferðanefnd hafði gert ráð fyrir og lentum því í vandræðum með gistingu, auk þess sem ljóst var að 16 manna bíll Einars Vals var of lítill til að rúma þá sem vildu fara. Því var pallbíl Önnu Soffíu bætt við ferðina, bæði til að tryggja að allur farangur kæmist með en færi samt vel um allar græjutöskur og ljósmyndaverkfæri og til að tryggja að allir kæmust með inn í Núpsstaðaskóg sem var aðal áfangastaður ferðarinnar.

Lesa áfram „Vorferð í Skaftafellssýslur“