Sýning Fókus í Skotinu – Vetrarmyndir

Föstudaginn 17. apríl var þriðji hluti sýningarinar Skotið í Fókus á Ljósmyndasafni Reykjavíkur opnuð. Nú er þemað Vetrarmyndir og sýnendur eru sex Fókusfélagar.

Sýnendur f.v.: Íris Reynisdóttir, Þórður Kr. Jóhannesseon, Hallfríður Ingimundardóttir, Jón Stefánsson og Helga Gréta Ingimundardóttir. Hrafnhildur L. Hafsteinsdóttir var fjarverandi við opnunina. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson.

Að vanda var ljúf og góð stemming á opnuninni. Bára Snæfeld Jóhannsdóttir úr sýningarnefnd ávarpaði gesti, kynnti sýnendur og þakkaði starfsfólki Ljósmyndsafns Reykjavíkur fyrir einstaklega gott samstarf.

Bára Snæfeld Jóhannsdóttir ávarpar opnunargesti. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson.
Opnunargestir hlýða á ávarp Báru. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson.

Hópurinn sem á myndirnar á þessari sýningu er góður þverskurður af fólkinu í Fókus; sumir hafa verið lengi í félaginu og tekið þátt í nokkrum sýningum á meðan aðrir eru að sýna ljósmynd á sýningu í fyrsta skipti, sem er alltaf stórt skref.

Vetrarmyndirnar eru fjölbreyttar og sýna ýmiss konar vetrarstemmingu sem er gott að horfa til baka á, nú þegar vorið er farið á stjá. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson.

Eftir ávarp sýningnefndar og blómagjafir til sýnenda tók við gott spjall með léttum veitingum. Fókus þakkar sýnendum og gestum þeirra kærlega fyrir þessa ljúfu föstudagsstund.

Vetrarmyndirnar munu verða til sýnis til 31. maí er sýningin opin öllum á sýningartíma Ljósmyndasafnsins: Mánudaga-fimmtudaga 10:00-18:00, föstudaga 11:00-18:00 og um helgar 13:00-17:00.

Að lokum eru hér nokkrar stemmingsmyndir frá opnuninni:

Þemun sem eftir eru á sýningunni verða síðan sem hér segir:

  • Abstrakt 5. júní – 19. júlí
  • Götumyndir 24. júlí – 13. september
  • Svart / hvítt 18. september – 1. nóvember
  • Vatn 6. nóvember – 31. desember