
Einar Falur Ingólfsson, var með fyrirlestur um sinn feril sem ljósmyndari á fræðslufundi Fókus 22. september síðastliðinn.
Einar Falur byrjaði mjög snemma að taka ljósmyndir og fyrstu myndir hans birtust í fjölmiðli þegar hann var 14 ára gamall og 19 ára er hann orðinn ljósmyndari hjá Morgunblaðinu, meðfram þessu lærði hann bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Hélt síðan í nám í ljósmyndun frá School of Visual Arts í New York að tilstuðlan Mary Ellen Mark og lauk þar MFA-gráðu. Eftir nám og störf í New York kom hann heim þegar honum bauðst að taka að sér myndstjórn hjá Morgunblaðinu, einnig hefur hann starfað þar sem menningarblaðamaður.
Einar Falur hefur haldið fyrirlestra víða um listir og einkum um ljósmyndun. Hann kenndi um skeið árleg námskeið í Reykjavík, fyrst með Mary Ellen Mark og síðar Ragnari Axelssyni, einnig sl. liðin ár í Ljósmyndaskólanum.

Hann sneri sér að eigin listsköpun fyrir um tuttugu árum og hefur unnið fjölda ljósmyndaverkefna í formi bóka. Einar Falur lýsti því hvernig hann tengir alltaf við fólk eða ummerki fólks í sínum myndefni. Hann sagð frá tilurð bóka sinna þar sem hann nær að flétta saman áhuga sinn og þekkingu á bókmenningu og ljósmyndun í ljósmyndaverkefnunum, tekur hvert verkefni nokkur ár. Sýndi hann meðal annars dæmi úr eftirfarandi bókum:
- Sögustaðir – Í fótspor W.G. Collingwoods (2010)
- Landsýn – Í fótspor Johannesar Larsen (2017)
- Aftur Again – Samtal við Conversing with Sigfús Eymundsson (2025)
Í þessum þrem verkum fetar hann í fótspor þessarra listamanna og ljósmyndara og notar verk þeirra sem eins konar leiðsögumenn á hans eigin löngu og persónulegu ferðalögum um Ísland, þar sem hann myndaði á stórformats blaðfilmuvél, nákvæmlega sömu staði og þeir.

Á undanförnum áratug hefur Einar Falur einnig unnið að mörgum öðrum langtíma verkefnum um fólk og fræddi hann félagsmenn Fókus um nokkur þeirra. Árið 2021 lauk hann tökum á sjónrænni dagbók 20 mánaða, Um tíma“ sem hann myndaði á Íslandi, Ítalíu og Indlandi. Afraksturinn var sýning í BERG Contemporary og bók. Hann hefur verið fulltrúi Íslands í fjölþjóðlegu myndlistarverkefni um veðrið „The Look at the Sky – A Weather Diary“ sýnt í Listasafninu á Akureyri haustið 2024. Daglega kl. 12.00 tók hann mynd af veðrinu, skráð líkt og Árni Thorlacius hafiði skráð veður 170 árum áður í Stykkishólmi.

Loks sagði hann frá nokkrum verkefnum sem eru í vinnslu þar á meðal eitt sem hann vinnur að á Indlandi. Í nokkur ár hefur hann dvalið tímabundið á vinnustofu í Varanasi helgustu borg Indlands að sinna listsköpun sinni. Afrakstur þess verkefnis mun birtast almenning á komandi ári.
Einkasýningar á verkum hans hafa verið settar upp víða, auk þátttöku í samsýningum, hér heima og í fjölda annarra landa. Verk eftir Einar Fal eru í eigu helstu listasafna á Íslandi.
Fókus þakkar Einari Fal fyrir fróðlega kynningu og innblástur sem hann veitir okkur félögunum.
Slóð á heimasíðu Einars Fals: https://www.einarfalur.com


