Vetrarmyndir á veggjum Skotsins

Vaskur hópur sýnenda og fulltrúa sýningarnefndar Fókus mætti í morgun (15.4.2026) til að setja upp þriðju þemasýningu Fókus 2026, „Vetrarmyndir“ í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 6. hæð.

Opnunin er föstudaginn 17. apríl kl. 16:00.  Það er mikil eftirvænting hjá bæði sýningarnefnd og sýnendum sem hlakkar til að sjá ykkur sem flest á opnuninni.

Myndir af vinnu við uppsetningu tóku Helga Gréta Ingimundardóttir og Bára Snæfeld.

Mynd: Helga Gréta Ingimundardóttir
Lesa áfram „Vetrarmyndir á veggjum Skotsins“

Bára Kristinsdóttir heimsótti Fókus

Bára Kristinsdóttir heimsótti Fókus þann 17. febrúar og gaf okkur innsýn í feril sinn og verk. Hún fór yfir nokkur verkefni sín, notkun mismundandi myndavéla, filmu, poilaroid og digital. Bára fjallaði um eldri verkefni og þau nýrri. Í kynningu Báru mátti sjá hvernig persónuleg nálgun, hlýja, hugmyndir, efni og aðferðir fléttast saman í heildstæða frásögn.

Mynd: Kristján Kristjánsson
Lesa áfram „Bára Kristinsdóttir heimsótti Fókus“

Samsýning Fókusfélaga í Ljósmyndasafni Reykjavíkur opnuð

Það var góð stemming í Ljósmyndasafni Reykjavíkur föstudaginn 9. janúar þegar um 60 manns fögnuðu opnun sýningarinnar Skotið í Fókus.

Stefán Hrafn Jónsson, formaður Fókus, ávarpar gesti opnunarinnar. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson
Lesa áfram „Samsýning Fókusfélaga í Ljósmyndasafni Reykjavíkur opnuð“

SKOTIÐ í Fókus 2026

Fókus – félag áhugaljósmyndara í samstarfi við Ljósmyndasafn Reykjavíkur heldur sýningar í SKOTINU allt árið 2026.

Sýningarröðin kallast „ SKOTIÐ í Fókus 2026 “ alls verða sjö sýningar með mismunandi þemu. Sýnendur verða fjörutíu og sex talsins og hver sýning stendur yfir í sex vikur.

Lesa áfram „SKOTIÐ í Fókus 2026“

Sýning Fókus 2026

Fókus – félagi áhugaljósmyndara hefur verið boðið til samstarfs við Ljósmyndasafn Reykjavíkur með sýningar í SKOTINU allt árið 2026.

Alls verða þetta sjö sýningar með mismunandi þemu. Sýnendur verða fjörutíu og sex og hver sýning stendur í sex vikur.

Þemu sýninganna eru:
● Hreyfing 9. jan. –22. febr.
● Landslag 27. febr. –12. apríl
● Vetrarmyndir 17. apríl –31. maí
● Abstrakt 5. júní –19. júlí
● Götumyndir  24. júlí –13. sept.
● Svart-hvítt  18. sept. –1. nóv.
● Vatn 6. nóv. –31. des.

Félagið er afar stolt af að hafa fengið þetta boð og hlakkar mjög til samstarfsins.

Undirbúningsvinna fyrir fyrstu sýninguna, prentun mynda, gerð kynningarefnis o.fl., er nú á lokametrunum.

Opnun fyrstu sýningar er föstudaginn 9. janúar kl. 16.00-18.00

Við hvetjum ykkur til að taka daginn frá og fagna með okkur.

Sýningarnefnd Fókus 2026