Fókus – félagi áhugaljósmyndara hefur verið boðið til samstarfs við Ljósmyndasafn Reykjavíkur með sýningar í SKOTINU allt árið 2026.
Alls verða þetta sjö sýningar með mismunandi þemu. Sýnendur verða fjörutíu og sex og hver sýning stendur í sex vikur.
Þemu sýninganna eru:
● Hreyfing 9. jan. –22. febr.
● Landslag 27. febr. –12. apríl
● Vetrarmyndir 17. apríl –31. maí
● Abstrakt 5. júní –19. júlí
● Götumyndir 24. júlí –13. sept.
● Svart-hvítt 18. sept. –1. nóv.
● Vatn 6. nóv. –31. des.
Félagið er afar stolt af að hafa fengið þetta boð og hlakkar mjög til samstarfsins.
Undirbúningsvinna fyrir fyrstu sýninguna, prentun mynda, gerð kynningarefnis o.fl., er nú á lokametrunum.
Opnun fyrstu sýningar er föstudaginn 9. janúar kl. 16.00-18.00
Við hvetjum ykkur til að taka daginn frá og fagna með okkur.
Sýningarnefnd Fókus 2026
