Vaskur hópur sýnenda og fulltrúa sýningarnefndar Fókus mætti í morgun (15.4.2026) til að setja upp þriðju þemasýningu Fókus 2026, „Vetrarmyndir“ í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 6. hæð.
Opnunin er föstudaginn 17. apríl kl. 16:00. Það er mikil eftirvænting hjá bæði sýningarnefnd og sýnendum sem hlakkar til að sjá ykkur sem flest á opnuninni.
Myndir af vinnu við uppsetningu tóku Helga Gréta Ingimundardóttir og Bára Snæfeld.

