Stór hluti af gildi þess að vera í Fókus er að fara saman í styttri og lengri ferðir og njóta þess að taka myndir. Fólk mætir alltaf í góðu skapi, er alltaf tilbúið að aðstoða hvert annað. Eftir ferðirnar er svo gaman að sjá hvernig myndir hinir tóku og hugsa með sér „sniðugt sjónarhorn, sniðug aðferð, falleg mynd, frábær félagsskapur.“
Pistill Önnu Soffíu sem tekur þátt í kröftugu skipulagi ferðanefndar fylgir:
Fyrsta dagsferð Fókus á nýju ári var farin laugardaginn, 21. febrúar. Alls lögðu 12 félagar í leiðangur ásamt hundinum Lóu. Tíu félagar lögðu bílum við Grænavatn og gengu flestir að Austurengjahver, einn heillaðist af Grænavatni, en tveir félagar til viðbótar byrjuðu myndatöku við Kleifarvatn og fóru nokkuð aðrar leiðir, sem tillögur ferðanefndar höfðu bent á sem valkosti.
Til gamans má geta þess að Google maps vill ekki hafa nema eitt Grænavatn á Reykjanesi og reyndi að lokka hluta hópsins inn á Vigdísarvallaveg. En það er erfitt að aka á Trölladyngju og áttuðu félagarnir sig fljótlega og sameinuðust hópnum við Austurengjahver. Bjart veður með hæfilegri skýjahula, en hvasst. Því var gott að komast í skjól í gamla fjósinu í Krýsuvík, sem nú gegnir helst hlutverki leiktjald í kvikmyndum og sem vettvangur Graffara. Ferðanefnd þakkar félögum fyrir skemmtilega ferð.
Margar fallegar myndir voru skapaðar í ferðinni, hluti þeirra er birtur með þessari færslu.







