Það var fjölmennt og góðmennt á opnun annarrar sýningar Fókus í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag, 27. febrúar.

Í þetta sinn er þemað „Landslag“ og sjö Fókusfélagar sýna okkur hvað íslenska náttúran er fjölbreytt, framandi og falleg.

Félagsstarfið í Fókus er gríðarlega öflugt um þessar mundir og eiga sýnendur, sýningarnefnd og aðrir sem komu að þessari uppsetningu hrós og þakklæti skilið.
Hér eru nokkrar stemmingsmyndir frá opnunni:





Við hvetjum fólk til þess að kíkja á Ljósmyndasafnið og skoða sýninguna sem verður opin fram yfir páska þangað til að næsta þema tekur við.
