Í morgun var önnur sýning Fókus af sjö, þetta árið, sett upp. Hluti sýningarnefndar og komandi sýnenda drifu upp þær myndir sem sýndar verða í þemanu „Landslag“ í Ljósmyndsafni Reykjavíkur, Grófinni.
Spenna var í lofti að sjá útkomuna og tilhlökkun mikil fyrir opnuninn sjálfri á föstudaginn 27. febrúar kl. 16:00-18:00. Allir hjartanlega velkomnir.
Myndir af vinnu við uppsetningu tók Bára Snæfeld.


