Vorferð í Skaftafellssýslur

Anna Soffía í ferðanefndinni sendi okkur eftirfarandi pistil um vorferð Fókus 2025:

Vorferð Fókus var að þessu sinni 4 daga ferð í Skaftafellssýslur. Áhugi á ferðinni reyndist mikið meiri en ferðanefnd hafði gert ráð fyrir og lentum því í vandræðum með gistingu, auk þess sem ljóst var að 16 manna bíll Einars Vals var of lítill til að rúma þá sem vildu fara. Því var pallbíl Önnu Soffíu bætt við ferðina, bæði til að tryggja að allur farangur kæmist með en færi samt vel um allar græjutöskur og ljósmyndaverkfæri og til að tryggja að allir kæmust með inn í Núpsstaðaskóg sem var aðal áfangastaður ferðarinnar.

Það blés hraustlega í Dyrhólaey. Mynd: Anna Soffía Óskarsdóttir.

Lengi leit illa út með aukna gistingu fyrir hópinn, en hluti leitaði sér annarrar gistingar en ferðanefnd hafði bókað og fyrir þrábeiðni samþykkti gististaðurinn að þjappa mætti fólki saman og bæta við dýnum á gólfi þannig að flestir komust með á endanum.

Mynd: Anna Soffía Óskarsdóttir

Fáeinum dögum fyrir brottför fengu allir félagar rúm vegna afbókana og gistu 18 manns að Dalshöfða og 3 í Lækjarborgum. 4 félagar gistu síðan að Hótel Laka. Alls má því telja 25 félaga í ferðinni þegar upp var staðið.

Mynd: Anna Soffía Óskarsdóttir

Farið var af stað á fimmtudagsmorgni 1. maí og dagurinn notaður til myndatöku eftir efnum og ástæðum. Fyrsta stopp var Kvernufoss og framhaldið látið ráðast af hugmyndum ferðafélaganna, veðri og vindum.

Við Kvernufoss. Mynd: Anna Soffía Óskarsdóttir

Eftir að kvöldmat á Systrakaffi voru allir komnir í náttstað fyrir kl 21. Kvöldið leið svo ljúflega með skemmtisögum og græjupælingum eins og vera ber en nokkrir félagar fóru út í myndatöku þegar sólarlagið glampaði á Hvannadalshnjúkinn.

Lagt var af stað inn í Núpsstaðaskóg árla föstudagsmorguns, til að nýta morgunbirtuna í austanverðan Lómagnúpinn og ná sól inn í Kálfsklif og stærstu gilin í Núpsstaðarskógum.

Mynd: Anna Soffía Óskarsdóttir

Betur gekk en vænta mátti að koma rútunni okkar góðu yfir allar torfærur á leiðinni og nokkuð víst að það er ekki daglegt brauð að Sprinter renni þangað inneftir, jafnvel ekki tveggja drifa og á aðeins stærra skótaui en götubílarnir eru almennt og áreiðanlega vaggaði húsbíllinn í ferðinni ekki minna.

Mynd: Anna Soffía Óskaradóttir

Oft þurfti að stoppa til að taka myndir af stórbrotnu landslagi nær og fjær og oft snéru jafn margir rassar upp og hausar, þegar fólk hugaði að því sem næst var. Skemmtilegt var að þarna var skotið á filmu og myndavélar voru á öllum aldri, þótt sértrúarsöfnuður Canon hafi verið stærstur að vanda.

Þegar komið var á vegarenda skiptist hópurinn. Hluti gekk inn í Skógartorfu og gilin framan við Kálfsklifið. Áin hafði tekið megnið af stígnum sem áður var í brekkurótum, og völdu því aðrir að halda sig við léttari göngu og skoða fallegu gilin sem skerast inn í Austurfjallið austan við.

Eftir príl upp og ofan smágilin var komið in að Kálfsklifi, þar sem keðjan hangir á berginu. En upp hanan þarf að fara til að fá sýn yfir Tvílitahyl. Enginn fór þó upp að þessu sinni, þótt eyrin við ána næði ekki nógu langt til að sjá mætti Núpsárfossinn og vatnið blandaðist helst til mikið til að sjá mætti jökulvatnið mæta tæru vatni Svartárinnar.

Að kvöldi borðuðu allir saman að Dalshöfða, dýrindis lasagna að hætti Einars Vals. Guðjón Ottó tók myndir af ferðafélögum og breytti í einstaklega skemmtilegar karikatúr teiknimyndir og deildi með okkur við mikla kátínu.

Mynd: Guðjón Ottó Bjarnason

Á laugardagsmorgun 3. maí hittust allir við Stjórnarfoss norðan við Klaustur og dagurinn skipulagður á Síðu og Meðallandi. En í ljósi veðurspár var öllum kvæðum vent í kross og stormaði hópurinn til austurs, með Fjallsárlón að marki. Þegar fréttist af logni undir Lómagnúpi var komið við þar áður en lagt var á Skeiðarársandinn.

Mynd: Guðjón Ottó Bjarnason

Niðurstaða dagsins að enn á ferðanefndin heilan skipulagðan dag á Síðu og í Meðallandi, en hann bíður annarrar ferðar.

Á sunnudagsmorgun drukku flestallir félagar saman morgunkaffi meðan klárað var að pakka og gera klárt fyrir fyrstu myndatöku dagsins. Við túnfótinn í Dalshöfða er göngubrú á Hverfisfljóti og margt að skoða. Fljótið er enn að glíma við Lakagígahraunið, þótt langt sé síðan það rann og er farvegurinn enn að taka breytingum, fljótið að grafa sér farveg og skessukatlar og smáfossar þar sem það rennur úti á hrauninu í dag.

Mynd: Einar Valur Einarsson

Einnig vitum við að þarna eru gil og huldustaðir sem ekki vannst tími til að skoða í þessarri ferð. Lagt var af stað til vesturs uppúr hádegi og öllum skilað heilum inn fyrir borgarmörkin á skikkanlegum tíma.

Ferðin var einstaklega góð í alla staði og þakkar ferðanefndin frábæra samveru gleði og ánægju og hlakkar til næstu ferðar.

Ef þig langar að komast í skemmtilegan félagsskap áhugafólks um ljósmyndun og taka þátt í öflugu og skemmtilegu félagsstarfi, er hægt að skrá sig til leiks hér á vefnum.

Anna Soffía Óskarsdóttir, ferðanefnd