Aðalfundur 2025

Þriðjudaginn 29. apríl mættu 42 Fókusfélagar á aðalfund félagsins. Á fundinum var lögð fram skýrsla stjórnar, ársreikningar, kosið í stjórn og nefndir, eins og vera ber. Að fundi loknum var boðið upp á veitingar og spjall.

Í skýrslu stjórnar kom fram að Fókusfélagar eru 121 og starfsemi félagsins verið fjölbreytt á starfsárinu.

  • 9 kvöldfundir með fyrirlestrum og fræðslu
  • 7 kvöldrölt þar sem félagar hittast og mynda saman
  • 3 dagsferðir út fyrir höfuðborgarsvæðið
  • 2 helgarferðir
  • 39 sýnendur á samsýningu félagsins
  • 34 félagar með myndir í árbók

Það hefur vakið sérstaka ánægju stjórnar hversu stór og fjölbreyttur hópur félagsmanna hefur lagt hönd á plóginn við að skipuleggja félagsstarfið í vetur, en um 25 félagar hafa starfað í undirbúningi viðburða og ferða. Það er afskaplega dýrmætt fyrir svona félag að hópurinn sé virkur.

Við yfirferð ársreikninga kom fram að félagið stendur vel og rekstur félagsins er í góðu jafnvægi. Félagsgjöld verða óbreytt næsta starfsár.

Daðey Arnborg Sigþórsdóttir, formaður, Þorkell Sigvaldason, ritari og Ósk Ebenesersdóttir, meðstjórnandi gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Fókus þakkar þeim fyrir vel unnin störf í þágu félagsins undanfarin ár.

Stefán Hrafn Jónsson var kosinn ritari og Sandra Dögg Jónsdóttir meðstjórnandi. Ekkert framboð til formanns kom fram á fundinum og því var ákveðið að formannskjör myndi fara fram á framhaldsaðalfundi næsta haust. Arngrímur Blöndahl varaformaður sinnir embætti formanns þangað til.

Stjórn Fókus er þannig skipuð:

Arngrímur Blöndahl, starfandi formaður og varaformaður
Kristján U. Kristjánson, gjaldkeri
Stefán Hrafn Jónsson, ritari
Gissur Orri Steinarsson, meðstjórnandi
Sandra Dögg Jónsdóttir, meðstjórnandi
Tryggvi Már Gunnarsson, meðstjórnandi

Heilt yfir er stjórn ánægð og þakklát með það hversu vel starfið hefur gengið, félögum fjölgar jafnt og þétt og hópurinn orðinn mjög fjölbreyttur. Við vonumst til að næsta starfsár verði líka gjöfult og ljóst að margt spennandi er í farvatninu, svo sem sýningar, samstarf við finnskan ljósmyndaklúbb, ferðir, árbók og spennandi fyrirlestrar og fræðsla um hinar ýmsu hliðar ljósmyndunar.

Ef þig langar að komast í skemmtilegan félagsskap áhugafólks um ljósmyndun og taka þátt í öflugu og skemmtilegu félagsstarfi, er hægt að skrá sig til leiks hér á vefnum.