Fullbókað er í ferðina, en hægt er að láta skrá sig á biðlista. Sjá: https://www.fokusfelag.is/spjall/viewtopic.php?f=13&t=481
Category: Fréttir
Ný vikuáskorun: Haust
Í gær kom ný vikuáskorun inn á spjallið okkar góða. Að þessu sinni er þemað Haust. Nánari upplýsingar má finna hér.
Við hvetjum alla til að taka þátt í vikuáskoruninni og ekki skemmir fyrir þessi fína grein hér að neðan sem Tryggvi Már tók saman, 7 góð ráð fyrir haustlitina.
Að lokum minnum við á hugmyndasöfnun fyrir vikuáskoranirnar þar sem allir geta haft áhrif með því að koma sínum hugmyndum á framfæri.

Fyrsti stjórnarfundur starfsársins
Fyrsti stjórnarfundur starfsársins var haldinn 15. september síðastliðinn. Mikil spenna ríkir fyrir komandi vetri og gott útlit fyrir að hægt verði að halda fundi og viðburði með hefðbundnu sniði.
Fundargerðina má lesa hér.
Stjórnina skipa:
Arngrímur Blöndahl formaður
Guðjón Ottó Bjarnason varaformaður
Daðey Arnborg Sigþórsdóttir ritari
Geir Gunnlaugsson gjaldkeri
Kristján U. Kristjánsson meðstjórnandi
Aðalheiður Kristín Jónsdóttir varastjórn
Gunnar Freyr Jónsson varastjórn
Ný vikuáskorun: Lýsing
Ný vikuáskorun hefur litið dagsins ljós og er þemað að þessu sinni Lýsing.
Fróðleiksmolarnir sem fylgja með fjalla um 13 mismunandi aðferðir við lýsingu á portrait myndum í rituðu máli og myndböndum. Auk þess læddust með tvö stutt myndbönd um náttúrulega lýsingu. Það ættu allir að finna sér eitthvað við hæfi.
Sjá nánar hér: https://www.fokusfelag.is/spjall/viewtopic.php?f=25&t=471

Aðalfundur Fókus 2021 verður haldinn 7. september
Þá er loksins komið að því! Aðalfundur 2021 sem felldur var af dagskrá í maí síðastliðnum vegna samkomutakmarkanna er loksins kominn aftur á dagskrá og verður haldinn þann 7. september n.k. Allir félagsmenn fengu tölvupóst þess efnis nýlega með upplýsingum um stað og stund. Ef þú ert í félaginu en kannast ekki við að hafa fengið póstinn þá máttu endilega skoða ruslsíuna í póstforritinu þínu og ef bréfið finnst ekki þá máttu endilega hafa samband við okkur með tölvupósti á fokusfelag (hjá) fokusfelag.is
Aðalfundi Fókus 2021 frestað
Stjórn Fókus hefur rætt mögulegt fyrirkomulag á aðalfundinum sem ætti með réttu að boða í síðasta lagi í dag miðað við að fundurinn verði 25. maí n.k. Með hliðsjón af þessu þrautseiga Covid ástandi og að talsverðum vandkvæðum er bundið að halda fundinn með réttum hætti hvort sem er í raunheimum eða netheimum, þá hefur stjórnin ákveðið að slá fundinum á frest þar til að loknum sumarfríum. Þá mun núverandi stjórn sinna nauðsynlegum verkum fyrir félagið þar til ný stjórn tekur við í haust.
Stjórnin trúir því að hægt verði að halda fundinn með eðlilegum hætti í haust þar sem við getum hitt hvort annað og afgreitt það sem ber að afgreiða á aðalfundinum og ekki síður að eiga samveru þar sem við deilum skoðunum og ræðum sameiginleg áhugamál okkar yfir kaffibolla.
Þar sem nú fer að styttast í sumarfríatíma og skipulögð dagskrá fellur niður viljum við í stjórninni þakka öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóginn við starfið á liðnu starfsári. Þetta á að sjálfsögðu við bæði um fókusfélaga sem og aðra sem hafa staðið fyrir viðburðum á fundum, fyrirtæki sem hafa stutt okkur og ekki síst ykkur félögunum sem hafið oftast tekið þátt heimanfrá.
Óskum ykkur öllum gleðilegs sumars og hlökkum til að klára þetta starfsár og byrja nýtt í haust.
Kær kveðja,
Stjórnin
Könnun um vikuáskoranir
Fyrir hönd þeirra sem sjá um vikuáskoranir Fókus biðjum við ykkur að svara stuttri könnun til þess að átta okkur betur á eftirspurn, væntingum og óskum ykkar
Hér má svara könnuninni: https://www.surveymonkey.com/r/W8NQHB9
Fyrirfram þakkir, Daðey, Elín og Ingibjörg – Fókusfélagar.
Vikuáskorun vikuna 29.apríl-5. maí er stigar/tröppur/þrep
Vikuáskorunin þessa vikuna eru Stigar/tröppur/þrep.
Hér eru nokkrar hugmyndir en skemmtilegast er að láta hugmyndaflugið ráða.
https://digital-photography-school.com/ … se-images/
https://www.ephotozine.com/article/6-to … vely-14521
https://www.amateurphotographer.co.uk/t … ases-58083
Endilega setjið inn ykkar myndir inn á spjallið okkar undir þráðinn „Vikuáskorun 29. apríl – 5. maí 2021„.
Vikuáskorun vikuna 15.-22. apríl er PANORAMA
Áskorunin að þessu sinni er PANORAMA.
Nýverið setti formaður okkar hann Arngrímur inn góðar og gagnlegar leiðbeiningar á heimasíðuna um það hvernig hægt sé að taka og vinna panorama myndir.
Því er tilvalið að hvetja þá félagsmenn sem ekki hafa reynt þetta áður til þess að notfæra sér leiðbeiningarnar og prófa þetta.
Það eru svo margir frábærir landslagsljósmyndarar í hópnum þannig að það væri líka gaman að fá að sjá einhverjar myndir frá þeim sem eru reynsluboltar í pano – tökum og eftirvinnu.
Hér má finna leiðbeiningar fyrir vinnslu í LR og hér má finna leiðbeiningar fyrir vinnslu í PS.
Endilega setjið inn ykkar panorama myndir inn á spjallið okkar undir þráðinn „Vikuáskorun 15. – 22. apríl„.
Fókusfélagar taka spjallið

Netfundur Fókus á TEAMS þriðjudaginn 13. apríl kl. 20:00 til 21:30
Fundurinn er að þessu sinni aðeins fyrir félaga í Fókus
Hallfríður Ingimundardóttir segir okkur í máli og myndum frá því hvernig hún hefur þróast sem ljósmyndari frá því hún kom í félagið okkar fyrir nokkrum árum og til dagsins í dag. Spennandi verður að heyra hvernig hún hefur getað nýtt sér jafningjafræðslu og aðra starfsemi í félaginu til að komast á þann stað sem hún er í dag, sem frábær ljósmyndari.
Anna Soffía Óskarsdóttir ætlar að segja frá áhugaverðum ljósmyndastöðum og sýnir okkur myndir samhliða, Anna Soffía er mikill náttúruunnandi og lengi búin að vera virk í félaginu. Anna hefur verið óspar við að miðla af sinni þekkingu sem einn af okkar allra fróðustu félögum um landið og náttúru þess. Anna ætlar að spjalla um hvernig hún sér fyrir sér staði og mótíf og hvernig megi virkja náttúruna í samhengi ljósmyndunar.
Ragnhildur Finnbjörnsdóttir stjórnarmeðlimur mun taka spjallið með þeim Hallfríði og Önnu.
Um leið skorum við á ykkur sem heima sitjið að vera ófeimin við að taka spjallið með þeim.
Kær kveðja, Fókus
Linkurinn á TEAMS er í tölvupósti sem ætti að hafa borist í gær.