Vetrarmyndir á veggjum Skotsins

Vaskur hópur sýnenda og fulltrúa sýningarnefndar Fókus mætti í morgun (15.4.2026) til að setja upp þriðju þemasýningu Fókus 2026, „Vetrarmyndir“ í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, 6. hæð.

Opnunin er föstudaginn 17. apríl kl. 16:00.  Það er mikil eftirvænting hjá bæði sýningarnefnd og sýnendum sem hlakkar til að sjá ykkur sem flest á opnuninni.

Myndir af vinnu við uppsetningu tóku Helga Gréta Ingimundardóttir og Bára Snæfeld.

Mynd: Helga Gréta Ingimundardóttir
Mynd: Helga Gréta Ingimundardóttir
Mynd: Helga Gréta Ingimundardóttir
Mynd: Bára Snæfeld
Mynd: Bára Snæfeld