Hvað þarf að íhuga áður en við kaupum myndavél?

Að kaupa nýja myndavél er oftast stórt skref. Myndavélakaup eru oft töluverð frjárfesting sem getur að einhverju marki haft mótandi áhrif á ljósmyndarann næstu ár, sama hvort um er að ræða byrjanda eða lengra komna. Sumir falla í þá gryfju að telja að það nýjasta henti þeim best eða fylgja í blindni því sem aðrir segja að sé besti kosturinn.

Lesa áfram „Hvað þarf að íhuga áður en við kaupum myndavél?“

Ástríða í Fókus

Nafnið Fókus, félag áhugaljósmyndara er orðið mörgum kunnugt. Það er einfalt og skýrt: hér hittast þeir sem hafa brennandi áhuga á ljósmyndun, hvort sem þeir vinna við ljósmyndun eða ekki. En þegar nafnið er þýtt á ensku má draga fram áhugaverðan orðaleik sem sýnir hve tungumálið getur verið máttugt.

Ef við kynnum félagið á ensku liggur nær beinast við að segja Focus – Association of Amateur Photographers enda er enska orðið amateur í þessu samhengi þýtt sem áhugamanneskja. Þess ber þó að geta að samþykktir eða lög félagsins tilgreina ekki enskt heiti þess.

Lesa áfram „Ástríða í Fókus“

Úti alla nóttina – næturferð um Suðurland og Reykjanesskaga

Þann 4. júlí 2025 fór 21 félagi í Fókus – félagi áhugaljósmyndara – í einstaklega skemmtilega, vel skipulagða og í alla staði vel heppnaða næturferð um Suðurland og Reykjanesskaga. 

Fyrsta stopp var við Urriðafoss  (kl. 21:10). Urriðafoss í Þjórsá er vatnsmesti foss landsins og annar í röðinni í Evrópu á eftir Reinfall. Meðalrennslið er um 360 rúmmetra á sekúndu sem dugar til að fylla Laugardalslaugina á um 5 sekúndum. Nú eða um 1,2 milljón kaffibolla á hverri sekúndu. 

Lesa áfram „Úti alla nóttina – næturferð um Suðurland og Reykjanesskaga“

Kvöldrölt um Grasagarðinn í Laugardal

Þriðjudagskvöldið 24. júní 2025 röltu nokkrir félagar í Fókus um Grasagarðinn í Laugardal. Rúmlega fimmtán félagsmenn komu saman þetta fallega kvöld til að taka myndir af blómum – og mynda hver annan við að mynda. Veðrið lék ekki aðeins við okkur heldur líka aðeins lausum hala, með léttum úða í upphafi og vaxandi rigningu þegar líða tók á kvöldið. Það kom þó ekki að sök – þrautþjálfaðir ljósmyndarar vita að undir trénu gerast ævintýr og áhugaverð birtan í bleytunni bætir skap og vinskap viðstaddra.

Lesa áfram „Kvöldrölt um Grasagarðinn í Laugardal“

Vorferð í Skaftafellssýslur

Anna Soffía í ferðanefndinni sendi okkur eftirfarandi pistil um vorferð Fókus 2025:

Vorferð Fókus var að þessu sinni 4 daga ferð í Skaftafellssýslur. Áhugi á ferðinni reyndist mikið meiri en ferðanefnd hafði gert ráð fyrir og lentum því í vandræðum með gistingu, auk þess sem ljóst var að 16 manna bíll Einars Vals var of lítill til að rúma þá sem vildu fara. Því var pallbíl Önnu Soffíu bætt við ferðina, bæði til að tryggja að allur farangur kæmist með en færi samt vel um allar græjutöskur og ljósmyndaverkfæri og til að tryggja að allir kæmust með inn í Núpsstaðaskóg sem var aðal áfangastaður ferðarinnar.

Lesa áfram „Vorferð í Skaftafellssýslur“