Þriðjudagskvöldið 24. júní 2025 röltu nokkrir félagar í Fókus um Grasagarðinn í Laugardal. Rúmlega fimmtán félagsmenn komu saman þetta fallega kvöld til að taka myndir af blómum – og mynda hver annan við að mynda. Veðrið lék ekki aðeins við okkur heldur líka aðeins lausum hala, með léttum úða í upphafi og vaxandi rigningu þegar líða tók á kvöldið. Það kom þó ekki að sök – þrautþjálfaðir ljósmyndarar vita að undir trénu gerast ævintýr og áhugaverð birtan í bleytunni bætir skap og vinskap viðstaddra.
Myndefnið var fjölbreytt. Sumir veittu blómum athygli, aðrir reyndu að fanga stemninguna í garðinum eða mynda gesti njóta fjölbreyttrar flóru – og svo eru alltaf þeir sem sjá fegurðina í því sem aðrir ganga fram hjá. Grasagarðurinn reyndist skemtilega myndrænn við þessar aðstæður, félagar fönguðu skemmtilegar myndir, en fyrst og fremst var samvera félagsfólks dýrðin ein.
Þrátt fyrir votar buxur og þokukennd gleraugu undir lok kvölds var stemmingin létt og skapandi. Fólk var vel klætt og komst heim við góða heilsu Sumir luku kvöldinu með heimsókn í kaffihúsinu Læk og ræddu þar um ljósmyndun og fleira en aðrir drifu sig heim í þurrar buxur og öfluga myndvinnslu langt fram eftir kvöldi.
Þegar hreyfing er þema samsýningar Fókus 2026 er áhugavert að sjá hvernig Friðrik notaði tækifærið og æfði sig í ICM. Markviss hreyfing myndavélar eða MHM gæti mögulega náð fótfestu sem íslensk þýðing á ICM. Lesendur mega gjarnan gauka að greinarhöfundi betri þýðingu ef til er.

Félagsstarfið og grasagarðurinn eru í miklum blóma á þessum árstíma. Anna Soffía Óskarsdóttir og Hjörtur Stefánsson birtu margar fallegar blómamyndir á Facebook síðu Fókus.


Gott var að setjast niður í skjóli undir trénu og huga að afla dagsins.
