Föstudaginn 17. apríl var þriðji hluti sýningarinar Skotið í Fókus á Ljósmyndasafni Reykjavíkur opnuð. Nú er þemað Vetrarmyndir og sýnendur eru sex Fókusfélagar.

Að vanda var ljúf og góð stemming á opnuninni. Bára Snæfeld Jóhannsdóttir úr sýningarnefnd ávarpaði gesti, kynnti sýnendur og þakkaði starfsfólki Ljósmyndsafns Reykjavíkur fyrir einstaklega gott samstarf.


Hópurinn sem á myndirnar á þessari sýningu er góður þverskurður af fólkinu í Fókus; sumir hafa verið lengi í félaginu og tekið þátt í nokkrum sýningum á meðan aðrir eru að sýna ljósmynd á sýningu í fyrsta skipti, sem er alltaf stórt skref.

Eftir ávarp sýningnefndar og blómagjafir til sýnenda tók við gott spjall með léttum veitingum. Fókus þakkar sýnendum og gestum þeirra kærlega fyrir þessa ljúfu föstudagsstund.
Vetrarmyndirnar munu verða til sýnis til 31. maí er sýningin opin öllum á sýningartíma Ljósmyndasafnsins: Mánudaga-fimmtudaga 10:00-18:00, föstudaga 11:00-18:00 og um helgar 13:00-17:00.
Að lokum eru hér nokkrar stemmingsmyndir frá opnuninni:





Þemun sem eftir eru á sýningunni verða síðan sem hér segir:
- Abstrakt 5. júní – 19. júlí
- Götumyndir 24. júlí – 13. september
- Svart / hvítt 18. september – 1. nóvember
- Vatn 6. nóvember – 31. desember
