Kraftur á aðalfundi Fókus 2026

Um 46 félagar mættu á aðalfund Fókus sem haldinn var í Hraunbæ 123 þann 21.4.2026 og var stemningin í senn hlý og kraftmikil. Slík mæting á aðalfund er ekki sjálfgefin í félagasamtökum og endurspeglar hún sterka samkennd og vaxandi áhuga á öflugu starfi félagsins. Mæting upp á 25% á aðalfund þekkist vart í íslenskum félagasamtökum.

Ellert B. Guðjósson var valinn fundarstjóri og Brynja Jóhannsdóttir ritaði fundargerð. Bæði sinntu þau hlutverkum sínum af miklum sóma.

Fundurinn fór fram samkvæmt boðaðri dagskrá þar sem hefðbundin aðalfundarstörf voru tekin fyrir. Umræður voru jafnframt góðar og komu fram ýmsar hugmyndir um starfið á komandi ári.

Mynd: Kristján Kristjánsson

Á fundinum voru kynntar lykiltölur úr starfi ársins 2025 sem sýna skýrt að félagið er í miklum vexti. Félagar eru nú 160 (samkvæmt tölum 21.04.2026), samanborið við 121 árið áður, sem jafngildir um 32% fjölgun. Starfsemin var afar fjölbreytt: haldnir voru 12 kvöldfundir, 6 kvöldrölt og tvær skipulagðar dagsferðir auk einnar næturferðar. Þá voru farnar tvær lengri ferðir, vorferð og haustferð, sem nutu mikilla vinsælda og eru sífellt sterkari hluti af starfi félagsins.

Reikningar félagsins voru lagðir fram og samþykktir. Reksturinn á síðasta ári var um það bil á sléttu og lítið gengið á varasjóðinn. Staða fjármála er góð. Hér að neðan má sjá hvernig útgjöld félagsins skiptast á mismunandi kostnaðarliði.

Árgjöld í Fókus eru áfram aðeins 7.500 kr. og hafa staðið óbreytt frá árinu 2017. Miðað við verðlagsþróun þyrfti árgjaldið að vera um 11.500 kr., sem þýðir að raunvirði félagsgjalda hefur rýrnað um um 36%.

Árbók Fókus var afhent á fundinum við góðar undirtektir og þátttakendum var sérstaklega þakkað fyrir framlag sitt. Árbókin heldur áfram að styrkjast; 43 félagar tóku þátt í útgáfu árbókar 2025, samanborið við 34 árið áður. Starfi félagsins er nú gerð betri skil í árbókinni en áður. Á myndinni hér að neðan má sjá árbókarnefndina að störfum ásamt hluta af upplagi ársins.

Árbókarnefndin að störfum
Mynd: Kristján Kristjánsson

Þá tóku 38 félagar þátt í samsýningu félagsins í Gallerý Gróttu, sem undirstrikar mjög virka þátttöku í skapandi starfi félagsins.

Mynd: Kristján Kristjánsson

Mikil aukning hefur einnig orðið í stafrænu umfangi félagsins. Í Facebook-hópi Fókus eru nú 2.765 félagar, samanborið við um 1.773 árið áður. Á vef félagsins voru birtar 22 fréttir um starfsemina auk tveggja almennra greina. Umferð á vefinn jókst verulega, með 3.070 gesti (úr 2.411) og 7.741 síðuskoðanir (úr 5.900), sem samsvarar um 27–31% aukningu.

Á fundinum fékk Regína Rist góða kosningu í stjórn Fókus. Helga Gréta Ingimundardóttir og Jóhanna Ingimundardóttir voru kosnar í ferðanefnd. Íris Reynisdóttir var kosin í sýninganefnd. Geir Gunnlaugsson sinnir áfram mikilvægu hlutverki skoðunarmanns reikninga.

Gissur Orri og Einar Valur taka sér hlé frá störfum ferðanefndar. Ólafur Magnús Håkansson tekur sér hlé frá störfum sýningarnefndar og Tryggvi Már tekur sér hlé sem meðstjórnandi. Við í Fókus þökkum þeim fyrir vel unnin störf fyrir okkur öll.

Aðalfundurinn var ekki aðeins formlegur viðburður heldur einnig staðfesting á því að Fókus er lifandi og kraftmikið samfélag áhugaljósmyndara. Þegar yfir 40 félagar mæta til að taka þátt í aðalfundi, ræða málin og móta framtíðina bendir það til þess að félagið eigi glæsta framtíð.

Mynd: Kristján Kristjánsson

Formaður Fókus þakkar félagsfólki öflugt starf í vetur og hlakkar til áframhaldandi starfs með öflugri stjórn og nefndum Fókus.