Í dag bauðst Fókusfélögum að kíkja inn í Toppstöðina og mynda hana nú þegar stendur til að breyta innra rými hennar.

Það voru 17 manns sem mættu og óhætt að segja að umhverfið hafi verið spennandi og boðið upp á nánast endalaus mótíf.

Toppstöðin í Elliðaárdal var byggð um 1948 og þjónaði lengi sem varaaflstöð fyrir höfuðborgarsvæðið. Frá 1986 hefur hún fengið ýmis hlutverk, tengd nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi.

Það var ekki nóg með að umverfið væri framandi og fullt af sögu, heldur var birtan í húsinu fjölbreytt og virkilega gaman að finna ljóspolla hér og þar. Þeir Fókusfélagar sem mættu skemmtu sér vel við að takast á við umhverfið.



Um leið og Fókus þakkar umsjónarmanni hússins fyrir að veita okkur þetta einstaka tækifæri til þess að komast í svona skemmtilegt umhverfi fylgja hér nokkrar myndir af stemmingunni og umhverfinu.



