Heimsókn í Toppstöðina

Í dag bauðst Fókusfélögum að kíkja inn í Toppstöðina og mynda hana nú þegar stendur til að breyta innra rými hennar.

Toppstöðin hefur staðið ónotuð um langa hríð og ber þess merki. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

Það voru 17 manns sem mættu og óhætt að segja að umhverfið hafi verið spennandi og boðið upp á nánast endalaus mótíf.

Umsjónarmaður Toppstöðvarinnar segir áhugasömum Fókusfélaga frá húsínu. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

Toppstöðin í Elliðaárdal var byggð um 1948 og þjónaði lengi sem varaaflstöð fyrir höfuðborgarsvæðið. Frá 1986 hefur hún fengið ýmis hlutverk, tengd nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi.

Myndefnin voru á hverju strái. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

Það var ekki nóg með að umverfið væri framandi og fullt af sögu, heldur var birtan í húsinu fjölbreytt og virkilega gaman að finna ljóspolla hér og þar. Þeir Fókusfélagar sem mættu skemmtu sér vel við að takast á við umhverfið.

Myndefnið var um allt. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson
Formaðurinn mundar vélina. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson
Það er mikilvægt að stilla vélina rétt í krefjandi birtuskilyrðum. Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

Um leið og Fókus þakkar umsjónarmanni hússins fyrir að veita okkur þetta einstaka tækifæri til þess að komast í svona skemmtilegt umhverfi fylgja hér nokkrar myndir af stemmingunni og umhverfinu.