Það var góða blanda Fókusfélaga, ættingja, vina og ferðamanna sem mættu í opun „Abstrakt“, fjórðu þemasýningu Fókus föstudaginn 5. júní 2026.
Í þetta skipti áttu sjö Fókusfélagar myndir þar og féll samsetning sýnenda þannig að flestir þeirra eru í stjórn eða nefndum félagsins.

Guðbrandur Benediktsson safnstjóri ávarpaði sýnendur og gesti og fjallaði meðal annars um mikilvægi grasrótarfélags eins og Fókusar fyrir ljósmyndasamfélagið.
Stefán Hrafn Jónsson, formaður Fókus, ávarpaði gesti, kynnti sýnendur og þakkaði Ljósmyndasafni Reykjavíkur þeirra stuðning og góðu þjónustu.
Einnig var safninu afhentar tvær árbækur Fókus 2025 sem þakklætisvott, en þar eiga 43 Fókusfélagar myndir að þessu sinni.
Gleði ríkti í salnum og mikið spjall um myndirnar en um sjötíu manns mættu í opnunina. (Texti frá Sýningarnefnd)



Sýnendur Abtraktmynda, frá vinstri: Tryggvi Már Gunnarsson, Valentina H Michelsen, Gissur Orri Steinarsson,Hrannar Örn Hauksson, Halla Björg Baldursdóttir, Bára Snæfeld Jóhannsdóttir og Kristján U. Kristjánsson.




Bára Snæfeld Jóhannesdóttir skrifaði pistillinn.
